sudurnes.net
Brynja Hússjóður samþykkir samstarf um byggingu sex til sjö þjónustuíbúða - Local Sudurnes
Stjórn Brynju Hússjóðs Örykjabandalagsins samþykkti í gær samstarf við Reykjanesbæ um byggingu sex til sjö þjónustuíbúða í Reykjanesbæ. Samstarfið er með fyrirvara um samþykki stofnframlags vegna framkvæmdanna. Ekki hefur verið opnað fyrir umsóknir stofnframlags vegna ársins 2018 hjá Íbúðalánasjóði og enn ójóst hvenær það verður. Eins og fram kemur í nýsamþykktri húsnæðisáætlun sveitarfélagsins er hlutfall íbúða fyrir fatlaða lágt í sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að stutt verði sérstaklega við byggingu íbúða fyrir fatlaða er þarfnast umönnunar allan sólarhringinn, ásamt aðstöðu fyrir starfsfólk. Með samstarfinu við Brynju hússjóða eru tekin skref í þá átt bæta við sértæk búsetuúrræði fatlaðra í Reykjanesbæ. Með því að smella á þennan tengil opnast Húsnæðisáætlun Reykjanesbæjar. Með því að smella á þennan tengil má nálgast frekari upplýsingar um Brynju Hússjóð ÖBÍ. Meira frá SuðurnesjumFljúga allan ársins hring milli Keflavíkur og AkureyrarSegja lögbrot að senda barnshafandi konur til Reykjavíkur vegna lokana á HSSLjósaganga og náttfatapartý á Degi leikskólans – Myndir!40 þátttakendur frá Reykjanesbæ á landsmóti 50 ára og eldriNýtt myndavélakerfi tekið í notkun við HafnargötuKanalausir Grindvíkingar steinlágu gegn TindastóliReykjanesbær verði heilsueflandi samfélagStofna notendaráð fatlaðs fólksDIMMA með tónleika í GígnumEnn mikið ónæði af flugumferð yfir Reykjanesbæ