Brúðargjöfum stolið úr ferðatösku
Talsverðum verðmætum var stolið úr ferðatösku sem varð viðskila við eiganda sinn í flugi frá Manchester til Keflavíkur nýverið. Fyrir mistök hafnaði taskan í flugi til Munchen, í stað Keflavíkur, og var þar í nokkra daga áður en eigandinn fékk hana í hendur aftur.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að greinilega hafði verið vandlega valið úr töskunni því teknar höfðu verið brúðargjafir, sparifatnaður og iPad meðal annarra muna. Ekki er vitað hvar þjófnaðurinn átti sér stað.