sudurnes.net
Breiður hópur hagsmunaaðila skoði nýjan skóla á Ásbrú - Local Sudurnes
Sviðsstjóri menntasviðs Reykjanesbæjar hefur lagt til að skipaður verði undirbúningshópur vegna nýs grunnskóla á Ásbrú. Sviðsstjórinn leggur til að hópurinn samanstandi af breiðum hópi fólks frá hinum ýmsu hagsmunaaðilum í þeim tilgangi að fá fram sem flestar og fjölbreyttastar hugmyndir um skóla og skólastarf og tengsl skólans við nánasta umhverfi sitt. Gert er ráð fyrir að undirbúningshópurinn taki til starfa í byrjun október 2023 og skili skýrslu í mars 2024. Menntaráð sveitarfélagsins samþykkti á fundi sínum að skipaður verði undirbúningshópur í samræmi við tillögu sviðsstjóra. Meira frá SuðurnesjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkLýsa yfir furðu sinni á launahækkunumHafa greitt Isavia hátt á aðra milljón króna fyrir afnot af skammtímastæðumLækka fasteignaskatt og fráveitugjaldLjúfir tónar og góðgæti á Erlingskvöldi Bókasafns ReykjanesbæjarMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnÓska eftir tilnefningum um Bæjarlistamann GrindavíkurNýr bæjarstjóri Grindavíkur kynntur til leiks á fimmtudagEitt tilboð barst í verkefni upp á milljarðFljúga Max-vélunum til Spánar