sudurnes.net
Börn og ungmenni geta tilkynnt til barnaverndar - Local Sudurnes
Reykjanesbæ hefur mótað leiðir fyrir börn og ungmenni til að koma sínum skoðunum á framfæri með því að koma tilkynningarhnapp barnaverndar fyrir í spjaldtölvum grunnskóla sveitarfélagsins. Með honum geta börn og ungmenni að eigin frumkvæði og án milligöngu fullorðinna tilkynnt til barnaverndar telji þau sig eða einhvern annan vera í hættu. Þá hefur verið innleidd aðgengilegri ábendingagátt hjá sveitarfélaginu sem auðveldar öllum, þar með talin börnum og ungmennum að senda inn ábendingu. Allar ábendingar sem berast fara í formlegt ferli innan stjórnsýslunnar samkvæmt útgefnum verklagsreglum skjaladeildar og barnaverndar Reykjanesbæjar, segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins. Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir verkefnastjóri Barnvæns sveitarfélags og Halldóra Mjöll Ingiþórsdóttir fulltrúi ungmennaráðs Reykjanesbæjar kynntu tilkynningarhnappinn fyrir nemendum í Heiðarskóla og voru veggspjöld formlega afhent skólanum en allir grunnskólar munu fá eintök til þess að hengja upp á veggi innan skólanna. Einnig munu nemendur fá fræðslu í skólunum um Barnasáttmálann og tilkynningarhnappinn. Mynd: Reykjanesbær Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnTímamótasamningur Reykjanesbæjar og íþróttafélagannaMenningarkort Reykjanesbæjar komið í notkunHandtekinn um borð í flugvél eftir þjófnað úr fríhafnarverslunMálningaslettur og myndefni kom upp um veggjakrotaraVilja halda bótum og vinna svartÆrslabelgur á ÁsbrúDominos-deildirnar í körfuknattleik hefjast um miðjan októberBlóðslettur og hnífar [...]