Nýjast á Local Suðurnes

Ölvaðir ökumenn handteknir

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í vikunni tvo ökumenn sem grunaðir voru um að vera ölvaðir undir stýri. Í  öðru tilvikinu var ökumaðurinn stöðvaður af borgara í Grindavík og handtók lögregla manninn skömmu síðar.

Báðir ökumennirnir voru færðir á lögreglustöð og sleppt að lokinni skýrslutöku.