Nýjast á Local Suðurnes

Borgaraleg handtaka eftir árekstur – Ölvuðum tjónvaldi lá á að komast í burtu

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Ökumaður sem ók aftan á kyrrstæða bifreið í Njarðvík í vikunni ætlaði að aka í burtu enda grunaður um ölvun við akstur. Eigandi kyrrstæðu bifreiðarinnar horfði á atvikið og ræddi við ökumanninn. Hann vildi sem minnst tjá sig og lá greinilega á að komast í burtu.

Af því varð þó ekki því tveir nærstaddir menn komu eigandanum til aðstoðar, tóku ökumanninn út úr bílnum og héldu honum þar til lögreglumenn á Suðurnesjum komu á vettvang. Þeir handtóku ökuþórinn og færðu hann á lögreglustöð. Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af bíl hans því hann var ótryggður.