Nýjast á Local Suðurnes

Bólusettur leikmaður Grindavíkur greindist smitaður af kórónuveirunni

Leikmaður karlaliðs Grindavíkur í knatt­spyrnu hefur greinst smitaður af kór­ónu­veirunni. Hann er einkennalaus og kominn í einangrun, en ekki þótti ástæða til að senda aðra leikmenn liðsins í sóttkví.

Frá þessu var greint á Face­book-síðu fé­lags­ins í morgun, en þar kemur fram að viðkomandi leikmaður hafi verið bólusettur, en það á reyndar við um alla leikmenn liðsins, segir í Facebook-færslunni.