sudurnes.net
Boðað verður til íbúafundar vegna öryggisvistunar - Local Sudurnes
Boðað verður til íbúafundar vegna fyrirhugaðrar byggingar öryggisvistunar á vegum Félagsmálaráðuneytisins í Reykjanesbæ þegar nær dregur framkvæmdum, en ráðuneytið hefur sótt um lóð undir slíka starfsemi í sveitarfélaginu. Þetta kemur fram í svari bæjarstjóra, Kjartans Más Kjartanssonar í umræðum um málið í Facebook-hóp íbúa Reykjanesbæjar. Umræðurnar eru líflegar og ljóst að mikill meirihluti þeirra sem taka þátt í þeim eru á móti slíkri starfsemi nærri byggð, en til stendur að byggja húsnæði undir starfsemina í útjaðri nýs hverfis, Dalshverfis 3. Svar bæjarstjóra má sjá hér fyrir neðan: “… Nú voru það umræður um breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins og mögulega öryggisvistun á vegum ríkisins. Til að ljúka þeirri umræðu í bili skal ég lofa ykkur því að þegar línur hafa skýrst frekar í því máli verður boðað til íbúafundar þar sem fulltrúar félagsmálaráðuneytisins/ríkisins munu kynna undirbúning og hugmyndafræðina á bak við verkefnið og hvernig til stendur að tryggja öryggi íbúa Reykjanesbæjar, starfsfólks stofnunarinnar og skjólstæðinganna sjálfra.” Segir í svari bæjarstjóra. Meira frá SuðurnesjumBæjarstjóri Reykjanesbæjar: “Er hægt að ætlast til að sveitarfélög leysi úr fordæmalausri stöðu?”Undirrituðu viljayfirlýsingu um hringrásargarðHvernig svindlar Sara á mataræðinu? – Myndband!Hvetja íbúa til þess að taka þátt í könnun um sameiningu sveitarfélagaGefa 60% af innkomunni til HSSMyndbandið við [...]