sudurnes.net
Blindaðist af sól og ók á kennslubifreið - Local Sudurnes
Nokkur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Í gærkvöld var bifreið ekið á aðra á Grænásvegi í Njarðvík. Verið var að nota síðarnefndu bifreiðina við ökukennslu og var nemandinn að æfa sig að taka af stað í brekku þegar óhappið varð. Ökumaðurinn sem því olli kvaðst hafa blindast af sól. Engin slys urðu á fólki en dráttarbifreið þurfti til að fjarlægja bifreiðarnar. Auglýsing: Local leitar að markaðsstjóra – Ert þú sá rétti eða rétta? Þá barst lögreglu tilkynning um að stuðlaberg sem er við bifreiðastæðin framan við Hljómahöllina í Njarðvík hefði verið ekið niður. Á myndbandsupptöku af atvikinu sást þegar bifreið var ekið úr stæði og á grjótið með þeim afleiðingum að það losnaði upp og féll á hliðina. Haft var samband við umræddan ökumann. Loks var bifreið ekið inn í hlið annarrar á gatnamótum Þjóðbrautar og Njarðargötu í Keflavík. Engin slys urðu á fólki. Meira frá SuðurnesjumFimm handteknir eftir árekstur í SandgerðiFaldi sig og bílinn fyrir lögreglu eftir áreksturBifreið olli talsverðum usla og skemmdum í BónusÓvenjumörg umferðaróhöpp á SuðurnesjumRöskun á flugi frá Keflavíkurflugvelli vegna veðursEldur í bifreið á GrindavíkurvegiFlutningabíll valt á ReykjanesbrautGrafari olli heitavatnsleysi á SuðurnesjumLögregla kölluð til eftir árekstur – Báðir ökumenn töldu sig vera [...]