Nýjast á Local Suðurnes

Blindaðist af sól og ók á kennslubifreið

Nokkur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Í gærkvöld var bifreið ekið á aðra á Grænásvegi í Njarðvík. Verið var að nota síðarnefndu bifreiðina við ökukennslu og var nemandinn að æfa sig að taka af stað í brekku þegar óhappið varð. Ökumaðurinn sem því olli kvaðst hafa blindast af sól. Engin slys urðu á fólki en dráttarbifreið þurfti til að fjarlægja bifreiðarnar.

Auglýsing: Local leitar að markaðsstjóra – Ert þú sá rétti eða rétta?

Þá barst lögreglu tilkynning um að stuðlaberg sem er við bifreiðastæðin framan við Hljómahöllina í Njarðvík hefði verið ekið niður. Á myndbandsupptöku af atvikinu sást þegar bifreið var ekið úr stæði og á grjótið með þeim afleiðingum að það losnaði upp og féll á hliðina. Haft var samband við umræddan ökumann.

Loks  var bifreið ekið inn í hlið annarrar á gatnamótum Þjóðbrautar og Njarðargötu í Keflavík. Engin slys urðu á fólki.