Nýjast á Local Suðurnes

Björt framtíð opnar kosningaskrifstofu

Kosningaskrifstofa Bjartrar framtíðar í Suðurkjördæmi opnar formlega laugardaginn 14. október frá klukkan. 15:00 – 17:00. Óttarr Proppé, heilbrigiðsráðherra og formaður flokksins, mætir á opnunina og gefst gestum tækifæri til að kynnast áherslum flokksins og frambjóðendum fyrir komandi alþingiskosningar.

Skrifstofa Bjartrar framtíðar er staðsett á Hafnargötu 21 í Reykjanesbæ og verður opin reglulega fram að kosningum. Þá er þess getið í tilkynningu að allir séu velkomnir og að gott aðgengi sé að kosningaskrifstofunni.