sudurnes.net
Björgunarsveitaræfing með þyrlu í Grindavík í kvöld - Local Sudurnes
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar munu halda æfingu í nágrenni Grindavíkur í kvöld. Björgunarsveitin bendir Grindvíkingum á að hafa ekki áhyggjur þótt hávaði fylgi æfingunni. Þetta kemur fram í Facebook-færslu frá sveitinni. Þá segja björgunarsveitarmenn að tímasetningin sé kannski pínu óheppileg en á sama tíma er afar mikilvægt að æfa sig og viðhalda þekkingu björgunarsveitarmanna, segir einnig í færslunni, en mikið hefur verið um jarðhræringar og landris í nágrenni við Grindavík. Í færslu Þorbjarnar kemur einnig fram að æfingin hafi verið skipulögð með dágóðum fyrirvara, en ákvörðun hafi nú verið tekin um að fresta henni ekki þrátt fyrir jarðhræringar á svæðinu og ítreka að aðeins sé um æfingu að ræða og engin hætta á ferðum þó svo það gæti heyrst í þyrlu. Meira frá SuðurnesjumSlit á samstarfi kom Njarðvíkingum á óvart – Efla tengsl annars- og meistaraflokksEndurvekja körfuboltann í GarðiKvikusöfnun við Þorbjörn – Þetta getur gerst!Óvissustig vegna landriss á ReykjanesskagaFjórtan skjálftar við Grindavík – Enn greinilegt landris í gangiBlindaðist af sól og ók á kennslubifreiðLeggja til að Íþróttaakademían verði seld og að byggð verði ný fimleikahöllBrynjar Atli æfir með Sheffield UnitedAlþjóðadagur Downs Syndrome – Mættu á æfingu í marglitum búningum og mislitum sokkumÍslensk abstraktmyndlist við upphaf 21. aldar [...]