Nýjast á Local Suðurnes

Bjóða út viðhald á 12 þúsund fermetra flugskýli

Mynd: Skjáskot RÚV

Framkvæmdasýsla Ríkisins hefur óskað eftir tilboðum í viðhaldsframkvæmdir á byggingu 831 á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða rúmlega 12 þúsund fermetra flugskýli Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Á meðal þess sem gera þarf að framkvæma er að uppsteypa á tveimur lyftuhúsum og niðurrif á um 800 fermetra viðbyggingu. Þá þarf að mála stálbita og klæningar og lagfæra utanhússklæðningu. Vettvangsskoðun verður haldin þann 17. apríl næstkomandi. Nánari upplýsingar má nálgast á vef Ríkiskaupa sem sér um útboðið.