Bjóða út breikkun á hluta Grindavíkurvegar
Vegagerðin býður út gerð breikkunar á Grindavíkurvegi, gerð hliðartenginga og stíga. Í útboðsgögnum kemur fram að breikka skuli tvo kafla Grindavíkurvegar milli Seltjarnar og Bláa lóns.
Verkið skiptist í fjóra áfanga og skal verkinu að fullu lokið undir lok októbermánaðar.