Nýjast á Local Suðurnes

Bjóða upp á ókeypis foreldranámskeið í Reykjanesbæ

Hugarfrelsi býður foreldrum barna og unglinga í Reykjanesbæ upp á ókeypis foreldranámskeið. Hugarfrelsi heldur fyrirlestra um land allt sem byggðir eru á bókum Hugarfrelsis og fjalla um áhrifaríkar aðferðir til að bæta líkamlega og andlega líðan í leik og starfi.

Hér er um stutt og hnitmiðað námskeið að ræða. Hraði og áreiti einkennir samfélag okkar í dag og eiga börn og unglingar oft á tíðum erfitt með að vera besta útgáfan af sér. Gríðarlegur tími fer í notkun á snjalltækjum sem ýtir undir samanburð og neikvæða sjálfsmynd. Mikilvægt er að börn og unglingar kunni að nýta sér einfaldar aðferðir til að staldra við, slaka á og njóta augnabliksins.

Á námskeiðinu verður farið yfir:
– Hvernig hægt er að leiðbeina börnum í að velja jákvæðni umfram neikvæðni
– Hvernig foreldrar geta hjálpað börnum sínum að efla sjálfsmynd sína og styrkleika
– Einfaldar öndunar-, slökunar- og hugleiðsluæfingar sem auka vellíðan, efla einbeitingu, hugarró og draga úr kvíða
– Einfaldar leiðir til að hjálpa barninu þínu til að sofna

Að námskeiðinu loknu ættu þátttakendur að hafa í höndum verkfæri til að nýta í uppeldinu svo börn þeirra nái að blómstra og finni aukna hugarró.

Ef þú vilt efla þig sem foreldri og læra einfaldar aðferðir sem þú getur nýtt í uppeldinu þá er þetta námskeið tilvalið fyrir þig!

11. september 2019 (miðvikudagur)
Kl. 20:00-21:30
Íþróttaakademían í Reykjanesbæ, Sunnubraut 35

Skráning á www.hugarfrelsi.is, takmarkaður sætafjöldi.