sudurnes.net
Bjóða ókeypis hleðslu - Local Sudurnes
N1 hef­ur opnað fyr­ir hraðhleðslu í Reykja­nes­bæ og geta íbú­ar nú hlaðið bíla sína þar frítt. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá N1. Not­end­ur þurfa ekki að auðkenna sig við hleðslu­stæðin, held­ur er nóg að stinga bíl­un­um í sam­band og hlaða. Um er að ræða sex hraðhleðslu­stæði í Reykja­nes­bæ. „Við vilj­um koma til móts við ábend­ingu al­manna­varna um að fólk fari spar­lega með raf­magn í íbúa­byggð og hlaði raf­bíla frek­ar í hraðhleðslum á svæðinu,“ er haft eft­ir Ými Erni Finn­boga­syni, fram­kvæmda­stjóra N1 á vef mbl.is. „Þannig er dregið úr álagi á kerf­inu sem er mjög mik­il­vægt við þær aðstæður sem eru uppi og eru nógu krefj­andi fyr­ir fjöl­skyld­ur á svæðinu. Til að ein­falda þetta enn frek­ar fyr­ir not­end­ur ákváðum við að það væri þeim að kostnaðarlausu að hlaða bíl­inn, svo ekki færi á milli mála að þetta væri aðgengi­legt öll­um.“ Meira frá SuðurnesjumLandsmótsgestir hafa verið áberandi í GrindavíkAndlitslyfting Hafnargötu – Skiptar skoðanir á skreytingum“Hraunað” yfir tilboð Bláa lónsins – “Engin heilvita manneskja fer í þetta sullumdrull”Auglýsa eftir aðilum til að reka “Pop-up” veitingastað í LeifsstöðAukning í beiðnum um fjárhagsaðstoð ekki tengd Covid 19Vöruverð of hátt og Samkaupsfólk heldur til fundarBikarhelgi á Suðurnesjum – Grannar berjast í Keflavík og GrindavíkBreytt skipulag [...]