sudurnes.net
Bjargað úr brennandi húsi - Local Sudurnes
Manni var bjargað úr brennandi húsi við Hlíðarveg í Reykjanesbæ á fjórða tímanum í dag. Tilkynning um eldinn barst slökkviliði um klukkan tuttugu mínútur í fjögur og var dælubíll og sjúkrabifreið þegar send á vettvang. Frá þessu er greint á Vísi. Jón Guðlaugsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, segir í samtali við Vísi að þegar að var komið hafi verkefnið reynst mun umfangsmeira en reiknað hafði verið með. Ekki hefði komið fram í tilkynningunni til slökkviliðs um að maður væri innandyra í húsinu þar sem eldurinn var. Meira frá SuðurnesjumBáðust afsökunar á flugeldakastiLandhelgisgæslan aðstoðaði við slökkvistarf – Myndir!Tilraun til að smygla unglingspilti til landsins enn í rannsóknKurr í lögreglumönnum vegna nauðgunarmáls – Hefðu viljað gæsluvarðhaldLögregla kom manni til bjargar – Ætlaði að ganga frá FLE til Hafnar í HornafirðiVantar klósett fyrir golfaraHópferðir Sævars aka skólabörnum í sund – Rúmlega átta milljóna króna ávinningurFundu brak sem talið er vera úr seglskútu sem saknað hefur verið frá því í sumarEllefu ára börn fundu amfetamínBæjarstjórn Garðs ályktar um tvöföldun Reykjanesbrautar