Nýjast á Local Suðurnes

Birta röntgenmynd af meltingarvegi manns sem var tekinn með kíló af kókaíni í FLE

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Lögreglan á Suðurnesjum hefur aldrei fundið jafn mikið af fíkniefnum í líkama manneskju hér á landi og þegar mikið fatlaður karlmaður var tekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar með rúmt kíló af kókaíni innvortis á síðasta ári. Kókaínið var í 106 pökkum í meltingarvegi mannsins.

“Sú leið að reyna að smygla fíkni­efn­um þá leiðina [Innsk. blm.: Í gegnum flugstöðina] verður því að telj­ast mjög áhættu­söm fyr­ir þá sem það reyna. Að auki má minna á af­drif rúm­lega tví­tugs ís­lensks karl­manns sem kom með 42 pakkn­ing­ar inn­vort­is til lands­ins í októ­ber. Ein pakkn­ing­in tók að leka og var hann flutt­ur lífs­hættu­lega veik­ur með hraði á Land­spít­al­ann þar sem hann und­ir­gekkst rúm­lega þriggja klukku­stunda skurðaðgerð.“ segir í tilkynningu sem lögreglu sendi frá sér í kjölfar fréttar um að lagt hafi verið hald á 42 kíló af hörðum fíkniefnum í FLE á síðasta ári.