Birna Björk nýr íþróttafulltrúi UMFN
Birna Björk Þorkelsdóttir hefur verið ráðin íþróttafulltrúi hjá Ungmennafélagi Njarðvíkur. Birna hóf störf hefur þegar hafið störf fyrir félagið og mun láta til sín taka ásamt Jennýju L. Lárusdóttur framkvæmdastjóra sem var fyrir ráðningu Birnu eini starfsmaður félagsins.
Birna mun hafa aðsetur í íþróttamiðstöðinni í Njarðvík (Njarðtaksgryfjunni) og sinna margvíslegum verkefnum fyrir félagið, segir í tilkynningu á vef Ungmennafélagsins.