Nýjast á Local Suðurnes

Bilzerian mætti aftur á Diamond Suites

Bilzerian er hvað þekktastur fyrir að birta myndir af sjálfum sér með fáklæddum dömum

Glaumgosinn og fjárhættuspilarinn Dan Bilzerian, sem hvað þekktastur er fyrir að njóta lífsins og deila myndum af  líferninu með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlunum er mættur hingað til lands í annað skiptið á þremur árum.

Líkt og í fyrri ferðinn hóf kappinn leik á Diamond Suites á Hótel Keflavík, en þar á bæ kostar nóttin um milljón krónur. Fjöldi fagurra kvenna fylgir Bilzerian um landið í þetta skiptið þannig að reikningurinn verður vætanlega í hærri kantinum að þessu sinni.

Bilzerian dásamaði matinn á hótelinu í síðustu ferð og var óspar á að deila myndum af hlaðborðinu með 27 milljón fylgjendum sínum á samfélagsmiðlunum og hann gerði slíkt hið sama í þetta skiptið eins og sjá má hér fyrir neðan.