Nýjast á Local Suðurnes

Bílvelta á Reykjanesbraut

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Nokkur umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum síðustu daga. Ökumaður velti bifreið sinni á Reykjanesbraut við Vogaveg og var hann fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Þá lentu þrír bílar í árekstri á Norðurljósavegi. Engin slys urðu á fólki. Tveir ökumenn óku á ljósastaura á Flugvallarbraut og Njarðarbraut og vinnuvél og bifreið lentu í árekstri á flughlaði á Keflavíkurflugvelli. Ökumaður bifreiðarinnar fékk skurð á höfuð við óhappið.