Bílastæðaþjónustu gert að greiða dagssektir
Neytendastofa hefur tekið ákvörðun um að Base Capital skuli greiða dagsektir kr. 100.000 á dag þar til félagið gerir viðeigandi breytingar á markaðsefni sínu og upplýsingum á vefsíðu. Þetta er önnur sektarákvörðunin sem stofnunin tekur vegna sömu viðskiptahátta Base Capital. Fyrirtækið rekur svokallaða „valet“ þjónustu undir merkjum Base Parking á Keflavíkurflugvelli.
Í fyrri ákvörðunum var niðurstaða Neytendastofu sú að Base Capital gæti ekki sannað fullyrðingar á vefsíðu sinni um að vera með ódýrasta daggjaldið og um fría „valet“ þjónustu. Þar sem Base Capital hefur ekki enn farið að ákvörðunum Neytendastofu telur Neytendastofa nauðsynlegt að leggja dagsektir á Base Capital.