Bílaleigubíl stolið og hann strípaður
Bifreið sem stolið var af bílaleigu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum fyrir nokkrum dögum fannst á malarplani á Ásbrú í vikunni.
Búið var að fjarlægja af og úr henni bæði afturljós, bæði framljós og grill, mælaborð, miðstöð og snertiskjá sem útvarp og fleira var í.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur málið til rannsóknar.