Nýjast á Local Suðurnes

Bifreið olli talsverðum usla og skemmdum í Bónus

Nokkuð hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum en engin alvarleg slys á fólki í þeim. Mannlaus bifreið rann til dæmis inn í anddyri Bónuss í Njarðvík og olli þar talsverðum usla og skemmdum.

Þá rákust snjómoksturstæki og bifreið saman á Reykjanesbraut , við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Á Aðalgötu í Keflavík varð harður árekstur þegar bifreið var ekið aftan á aðra og tveir ökumenn óku á vegrið á Reykjanesbraut.