sudurnes.net
Biðu klukkustundum saman eftir farangri í FLE - Búast við frekari töfum í dag - Local Sudurnes
Fjöldi fólks sem kom með flugi til landsins í gærkvöldi og snemma í nótt þurfti að bíða klukkustundum saman eftir farangrinum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. RÚV greindi frá, en í frétt miðilsins sagði að komufríhöfnin hafi verið yfirfull af fólki, enda lítill sem enginn farangur skilað sér til farþega, en fimmtán vélar lentu á vellinum frá klukkan 23 – 02. “Það er svo mikið af fólki hérna að brunaeftirlitið myndi eflaust loka staðnum ef það myndi sjá þetta. Það er allt fullt og fólk búið að bíða síðan klukkan ellefu. Enginn starfsmaður veit neitt og enginn gefur svör, allir yppta öxlum.” Sagði farþegi á staðnum, við RÚV. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia tengjast tafirnar stækkun á komusalnum og innleiðingu á nýju farangurskerfi þar. Búast megi við frekari töfum þótt vonast sé til þess að þær verði minni en í gærkvöldi. Meira frá SuðurnesjumHækka hvatagreiðslurHjólreiðastígur frá Reykjanesbæ að Flugstöð malbikaðurReynir á samtakamátt íbúa – Leiðbeiningar frá HS VeitumStarfsleyfi Thorsil stendurÁ þriðja hundrað skjálftar – Sá stærsti í nótt var 5 að stærðSigvaldi Arnar hvergi nærri hættur – Afhenti Umhyggju rúmar 2 milljónirÍbúðalánasjóður hefur sett 90 íbúðir á Reykjanesi í söluferliVerður heimilislaus eftir tvo daga: “Hélt í heimsku minni að þetta myndi aldrei [...]