sudurnes.net
Biðja fólk um að yfirgefa fjöruna vegna sýkingarhættu - Local Sudurnes
Björgunarsveitarmenn hafa beðið fólk, sem ætlaði að reyna að bjarga grindhvalavöðu úr ströndinni við Útskálakirkju í Garði, um að yfirgefa fjöruna. Sýkingarhætta er af dýrunum og þá er sjórinn orðinn rauður af blóði. „Það má ekki hreyfa dýrin því það fer illa með þau,“ segir Ingólfur Einar Sigurjónsson, formaður björgunarsveitarinnar Ægis í samtali við RÚV. Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning á tíunda tímanum í kvöld að um fimmtíu grindhvalir væru strandaðir í fjörunni við Útskálakirkju. Ljóst er að erfitt verður að bjarga dýrunum þar sem það fjarar fljótt undan þeim. Meira frá SuðurnesjumStórbruni í HelguvíkVatnsgæði eins og best verður á kosiðGrindvíkingar fá nýjan markvörðVíðir-Reynir á fimmtudag: Ágóði af miðasölu til styrktar fjölskyldu Jóhannesar HilmarsGáfu hælisleitendum sjónvarp – “Geta notið þess að horfa á Ísland vinna Nígeríu”Gríðarlegt álag á afgreiðslu HSS – Fólk sýni biðlundLögregla biður fólk um að hætta við fyrirhuguð afbrot um sinnTvær vikur í að göngustígar verði að fullu opnaðirLeikskólabörn rituðu bæjarstjóra bréf – Fótboltavöllurinn er eitt drullusvaðAðgerðaráætlun virkjuð í Suðurnesjabæ – Starfsfólki skipt í hópa