sudurnes.net
Beit lögreglumann við handtöku - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum hefur haldlagt nokkurt magn af fíkniefnum á undanförnum dögum. Í íbúðarhúsnæði, sem lyktaði langar leiðir af kannabis voru haldlagðir nokkrir pokar af kannabisefnum. Húsráðandi var handtekinn vegna vörslu á fíkniefnunum og fluttur á lögreglustöð. Hann sýndi mikinn mótþróa við handtökuna og náði að bíta lögreglumann í höndina áður en yfir lauk. Þá fundust amfetamín og hnífur á öðrum aðila vegna rannsóknar á óskyldu máli. Loks fundust við hlið bifreiðar, sem ekið hafði verið á ljósastaur fíkniefni í plastíláti. Ökumaður reyndist vera ölvaður og viðurkenndi að auki neyslu fíkniefna. Bifreiðin var mikið skemmd eftir áreksturinn og var fengin dráttarbifreið til að fjarlægja hana af vettvangi. Meira frá SuðurnesjumRéðst á flugfreyju og beit farþegaStaðbundin hækkun eldsneytisgjalda talin möguleg leið til að flýta vegaframkvæmdumHundur beit barnHundur beit innbrotsþjófBeit hjálpsaman lögreglumann í læriðNjarðvíkursigur í spennutrylli – Oddaleikur í Vesturbænum á föstudagSamþykktu 3,6 milljarða lántöku – Enginn afsláttur frá kröfuhöfum ReykjanesbæjarMánuður síðan fundað var um ónæði af flugumferð – Enn mikið flogið yfir byggðValdimar kláraði maraþonið með stæl – Stefnan sett á EsjunaSuðurnesjamenn flykkjast í verslanir