Nýjast á Local Suðurnes

Bein leið kynnir framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar

Framboðslisti Beinnar leiðar fyrir sveitarstjórnarkosningar í Reykjanesbæ 2018 hefur verið samþykktur. Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar skipar fyrsta sæti listans, Kolbrún Jóna Pétursdóttir, bæjarfulltrúi, annað sætið og Valgerður Björk Pálsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur það þriðja.

Listann má sjá í heild sinni hér fyrir neðan, en hann er skipaður konum og körlum til jafns.

1. Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar
2. Kolbrún Jóna Pétursdóttir, bæjarfulltrúi og lögfræðingur
3. Valgerður Björk Pálsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur
4. Birgir Már Bragason, málari
5. Helga María Finnbjörnsdóttir, viðskiptafræðingur og kennari
6. Kristján Jóhannsson, leigubílstjóri og leiðsögumaður
7. Halldór Rósmundur Guðjónsson, lögfræðingur
8. Lovísa N. Hafsteinsdóttir, námsráðgjafi
9. Ríta Kristín Haraldsdóttir Brigge, nemi
10. Kristín Gyða Njálsdóttir, tryggingaráðgjafi
11. Katarzyna Þóra Matysek, kennari
12. Davíð Örn Óskarsson, verkefnastjóri
13. Hrafn Ásgeirsson, lögregluþjónn
14. Sólmundur Friðriksson, kennari
15. Hannes Friðriksson, innanhúsarkitekt
16. Una María Unnarsdótti, flugfreyja og nemi
17. Baldvin Lárus Sigurbjartsson, afgreiðslustjóri
18. Freydís Kneif Kolbeinsdóttir, grunnskólakennari
19. Tóbías Brynleifsson, fyrrverandi sölumaður
20. Sossa Björnsdóttir, myndlistarmaður
21. Einar Magnússon, tannlæknir
22. Hulda Björk Þorkelsdóttir, verkefnastjóri