Baráttan um siliconið – Krefjast lögbanns á yfirtöku Arion Banka
Fjórir hluthafar í United Silicon, sem haldið hafa á um 46% hlut í félaginu, lögðu í dag fram lögbannskröfu á hendur Arion banka vegna töku bankans á veðsettu hlutafé í félaginu. Þetta staðfestir lögmaður hluthafanna fjögurra í samtali við mbl.is.
Krafan er lögð fram í kjölfar þess að Arion banki hafi ekki orðið við kröfum um að bakka út úr yfirtökunni. Deilt sé um hvort bankanum hafi verið heimilt að ganga að hlutafénu sem veðsett var. Krafan hefur ekki verið tekin fyrir hjá sýslumanni, en vonast er til þess að það verði gert fyrir vikulok.