Nýjast á Local Suðurnes

Banna á vinstri beygju við Hafnaveg – Ekki á áætlun að breyta öðrum gatnamótum

Bannað verður að beygja til vinstri á gatnamótum Hafnavegar og Reykjanesbrautar en breytingar á gatnamótunum munu fylgja framkvæmdum við undirgöng sem Vegagerðin stefnir á að bjóða út á næstunni. Til stóð að gera þessar breytingar síðasta haust þegar framkvæmdir voru í gangi við nýtt hringtorg við Stekk, en ekki náðist að klára þær framkvæmdir af ýmsum ástæðum. Þetta kemur fram í svari Svans G. Bjarnasonar svæðisstjóra Vegagerðarinnar við fyrirspurn Suðurnes.net.

“Það var hluti af útboðinu á hringtorginu við Stekk/Fitjar að loka fyrir vinstri beygjuna á Hafnaveginum. Það var hinsvegar ekki hægt að gera það fyrr en framkvæmdum við hringtorgið var lokið. Af ýmsum ástæðum drógust framkvæmdir við hringtorgið fram í desember og var því ekki hægt að ljúka við að steypa alla kantsteina fyrir veturinn og þar á meðal kantsteina sem þurfti til að steypa eyju við Hafnaveginn til að koma í veg fyrir möguleika á að taka vinstri beygju.” Sagði Svanur meðal annars í svari sínu.

Frá framkvæmdum við hringtorg á Reykjanesbraut - Til stóða að breyta gatnamótum við Hafnarveg á sama tíma, en það tókst ekki af ýmsum ástæðum

Frá framkvæmdum við hringtorg á Reykjanesbraut – Til stóða að breyta gatnamótum við Hafnarveg á sama tíma, en það tókst ekki af ýmsum ástæðum

Vert er að geta þess að tvöföldun Reykjanesbrautar er ekki á samgönguáætlun, sem gildir til ársins 2018, einu framkvæmdirnar við Reykjanesbraut samkvæmt áætluninni eru þær að byggð verða mislæg gatnamót á Reykjanesbraut við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði. Þá kemur fram í svari Svans að hvorki standi til að gera breytingar á gatnamótum Aðalgötu og Reykjanesbrautar, eða gatnamótum Þjóðbrautar og Reykjanesbrautar, þar sem þau verkefni séu ekki á samgönguáætlun.

Mikil umræða hefur átt sér stað á samfélagsmiðlunum um ástand Reykjanesbrautar að undanförnu og á dögunum var settur á laggirnar hópur á Facebook þar sem hvatt er til þess að lokið verði við tvöföldun Reykjanesbrautar sem fyrst, yfir 15.000 manns hafa skráð sig í hópinn á nokkrum sólarhringum. Í umræðum á síðunni kemur meðal annars fram að ástand brautarinnar sé slæmt, en að sögn Svans stendur til að fara í yfirlagnir á nokkrum köflum á Reykjanesbraut í sumar, líkt og gert sé á hverju ári.