sudurnes.net
Bæta rúmum 2.000 fermetrum við íþróttamannvirki - Local Sudurnes
Grindavíkurbær hefur óskað eftir að áhugasamir verktakar geri tilboð í verkið „Íþróttamannvirki Grindavíkur,” en um er að ræða viðbyggingu sem mun rísa norðan megin við núverandi íþróttahús. Byggingin mun verða 2130 fermetrar. Byggingin mun samkvæmt auglýsingu skiptast í þrjá hluta. Fyrsta hæð mun innihalda forrými sem tengir íþróttamiðstöð og tengigang við nýjan íþróttasal ásamt búningsaðstöðu, áhaldageymslu, afgreiðslurými, ræstiherbergi, stigagang og lyftu. Á annari hæð mun vera stigarými og lyftu ásamt fjölnotasal, salernisaðstöðu, lagnarými og stiga að þriðju hæð og tæknirými mun verða staðsett á þriðju hæð byggingarinnar. Áætlað er að hefja framkvæmdir eigi síðar en þann 15. febrúar næstkomandi. Meira frá SuðurnesjumHringtorg á Reykjanesbraut boðin út – Isavia aðili að útboðinuGerð undirganga við Hafnaveg í útboð – Verkinu skal lokið um miðjan nóvemberGróðursett til heiðurs Vigdísi FinnbogadótturVogar byggja upp Miðsvæði – Fyrsti áfangi boðinn útMagnús Orri vann Íslandsmeistaratitil í frjálsum æfingumReykjaneshöllin verður PhilipshöllinDeilt um byggingu súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju fyrir HæstaréttiVill að stofnaður verði afrekssjóður fyrir framúrskarandi ungt íþróttafólkÁtta þúsund fermetra Stapaskóli verður tilbúinn um mitt ár 2020Stöðvuðu verulega ölvaðan ökumann með þrjú lítil börn í bílnum