sudurnes.net
Bæta farangursflokkunarkerfi - Farþegar mæti þremur tímum fyrir flug - Local Sudurnes
Mælst er til þess að farþegar mæti á Keflavíkurflugvöll um þremur klukkustundum fyrir flug fyrstu þrjá daga júnímánaðar og að kvöldi 31. maí, á meðan unnið er að umbótum á farangursflokkunarkerfi. Tekinn verður í notkun nýr farangursflokkunarsalur og á meðan tengt er á milli núverandi kerfis og hinnar nýju viðbótar verður engin sjálfvirk farangursflokkun heldur þarf að handflokka allan innritunarfarangur. Farþegar eru beðnir um að mæta fyrr til að lágmarka seinkanir á flugi á meðan á þessum framkvæmdum stendur. Núverandi farangursflokkunarkerfi verður aftengt eftir klukkan 18 hinn 31. maí næstkomandi og gert er ráð fyrir að hið nýja kerfi verði komið í gagnið fyrir morgunflug hinn 4. júní. Tvöföld flokkunargeta Hið nýja kerfi hefur rúmlega tvöfalda flokkunargetu á við hið gamla og er nauðsynleg viðbót við núverandi kerfi. Í nýjum sal er auk þess mun betri vinnuaðstaða fyrir starfsfólk og nú verður unnt að þjónusta farangursgáma sem notaðir eru í breiðþotur eins og Icelandair og WOW Air eru að taka í notkun um þessar mundir. Framkvæmdir við nýjan sal hófust í nóvember á síðasta ári, stuttu eftir að flugfélögin höfðu tilkynnt um þá ákvörðun að taka breiðþoturnar í notkun. Nýbyggingin sem hýsir salinn er 3.000 fermetrar að stærð en þar [...]