sudurnes.net
Bæjaryfirvöld vinna að því að finna lausnir í útburðarmáli - Local Sudurnes
Friðjón Einarsson , formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, segir að vinna sé hafin við að finna lausnir á máli sem snýr að útburði fjölskyldu úr húsnæði sínu, eftir að það var selt á einungis þrjár milljónir króna á nauðungarsölu. Málið hefur verið mikið í fréttum síðasta tæpan sólarhring, en Friðjón tók það fram í viðtali við fréttastofu Bylgjunnar að hann hafi, líkt og flestir, frétt af málinu í kvöldfréttum RÚV í gær. Friðjón tók einnig fram að bæjaryfirvöld hafi ekki haft aðkomu að uppboðinu sjálfu. Líkt og áður segir, segir Friðjón að vinna sé hafin við að finna lausnir á málum: „Vonandi klárast eitthvað af því í dag. En þetta er mjög mikil tradegía fyrir fjölskylduna og segir líka dálítið mikið um samfélagið okkar, að svona geti gerst.’ Sagði Friðjón í hádegisfréttum Bylgjunnar. Meira frá SuðurnesjumHeimildarþættir um Varnarliðið á RÚV – Mikið af myndefni sem ekki hefur sést fyrrNettófrystar fullir af humri þrátt fyrir skort – Verðhækkanir vegna erfiðra veiðaUmhverfisstofnun hafnar skýringum United SiliconOfsaveður eða fárviðri – Þetta þarftu að hafa í huga!Bílar teknir að fjúka og vegir lokaðirSegja upp samningi við ThorsilMeð bakþanka um starfssemi í Reykjanesbæ vegna umræðu um eldsumbrotHandtekinn vopnaður öxi í miðbæ ReykjanesbæjarArnór Ingvi: “Var ekkert búinn að [...]