Nýjast á Local Suðurnes

Bæjarstjórn samþykkti einróma fyrirhugaða uppbyggingu í Njarðvíkurhöfn

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti einróma fyrirhugaða uppbyggingu í Njarðvíkurhöfn á bæjarstjórnarfundi þann 3. nóvember.

Liður 4 í fundargerð stjórnar Reykjaneshafnar frá 22. október 2020:

„Mikil óvissa er uppi í þjóðfélaginu og í heiminum öllum vegna alheimsfaraldursins COVID 19. Mörg fyrirtæki á landinu, í ferðaþjónustu sem og öðrum atvinnugreinum, eiga í miklum rekstrarerfiðleikum þar sem gjaldþrot þeirra blasir jafnvel við. Þessum erfiðleikum fylgir atvinnuleysi og er atvinnuleysi nú á Suðurnesjum með því hæsta sem þekkst hefur í Íslandssögunni. Við þessari þróun þarf að sporna með framkvæmdum sem skapa störf tímabundið og til lengri tíma”.

Bygging þurrkvíar í Njarðvík
Skipasmíðastöð Njarðvíkur hefur hug á að efla starfsemi sína með byggingu nýrrar þurrkvíar á athafnasvæði sínu við Njarðvíkurhöfn. Sú uppbygging myndi strax skapa á annað hundrað bein og óbein störf og leiða til annarrar uppbyggingar með viðeigandi störfum. En til að þessi áform gangi eftir þarf að ráðast í verulegar hafnarframkvæmdir í Njarðvíkurhöfn.

Reykjaneshöfn sem á og rekur Njarðvíkurhöfn, hefur á undanförnum árum stefnt að endurbótum á hafnaraðstöðunni í Njarðvík, er varðar endurnýjun viðlegukanta, dýpkun og byggingu skjólgarðs. Þær framkvæmdir myndu nýtast vel til að skapa það umhverfi sem til þarf fyrir uppbyggingu Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur, auk þess að skapa möguleika á uppbyggingu á annarri hafnsækinni starfsemi á svæðinu.

Viljayfirlýsing undirrituð
Þann 19. ágúst sl. undirrituðu Reykjanesbær, Reykjaneshöfn og Skipasmíðastöð Njarðvíkur viljayfirlýsingu um samræmt átak til að vinna framangreindum framkvæmdum brautargengi. Reykjaneshöfn og Skipasmíðastöð Njarðvíkur hafa kynnt fyrrnefnd uppbyggingaráform fyrir bæjarráðum allra sveitarfélaga á Suðurnesjum ásamt stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og hafa viðkomandi aðilar lýst yfir stuðningi við áformin sem eru atvinnueflandi fyrir íbúa Suðurnesja.

Fyrrnefndar endurbætur sem Reykjaneshöfn stefnir á í Njarðvíkurhöfn hafa í för með sér miklar framkvæmdir og eru kostnaðarsamar. Heimilt er samkvæmt Hafnalögum nr. 61/2003 að styrkja slíka framkvæmd úr ríkissjóði í gegnum samgönguáætlun, en forsenda þess að Reykjaneshöfn geti farið í þessa framkvæmd er að sá stuðningur sé til staðar. Fjárútlát Reykjaneshafnar verða þrátt fyrir það umtalsverð og mun Reykjanesbær styðja Reykjaneshöfn við þá fjármögnun.

Áskorun á ríkisstjórn og Alþingi
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar hér með á ríkisstjórn og Alþingi að tryggja fjárframlög til ofangreindra hafnarframkvæmda í Njarðvíkurhöfn í samræmi við heimildir í Hafnalögum í gegnum samgönguáætlun eða aðra innviðafjárfestingu svo renna megi fleiri stoðum undir atvinnulífið á Suðurnesjum og skapa ný störf til framtíðar.“