sudurnes.net
Bæjarstjórastöður á Suðurnesjum á lausu - Local Sudurnes
Starf bæjarstjóra sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis hefur verið auglýst laust til umsóknar, en leitað er að aðila sem býr meðal annars yfir leiðtogahæfni, frumkvæði auk hæfni í mannlegum samskiptum. Framundan eru fjölmörg krefjandi verkefni við að sameina íbúa og starfsfólk um nýtt sveitarfélag, og spennandi tækifæri sem m.a. tengjast alþjóðaflugvelli í landi sveitarfélagsins. Þá er líklegt að staða bæjarstjóra í Grindavík verði auglýst á næstunni á meðan ólíklegt verður að teljast að auglýst verði eftir bæjarstjóra í Reykjanesbæ þar sem fulltrúar allra flokka í nýjum meirihluta hafa lýst því yfir að ánægja sé með störf Kjartans Más Kjartanssonar, sem gengt hefur starfinu undanfarin ár. Staða bæjar- eða sveitarstjóra er laus í minnst fjórtán sveitarfélögum. Stöðurnar eru víðsvegar um landið. Auglýst er eftir bæjarstjóra á Akureyri, Fjarðabyggð, Ölfus, Hornafirði og Vesturbyggð. Einnig er auglýst staða sveitarstjóra í Bláskógarbyggð, Vík í Mýrdal, Skagafirði og Strandabyggð. Þá á eftir að ráða bæjarstjóra á Ísafirði, Blönduósi, Árborg. Meira frá SuðurnesjumBjörgunarsveitarmenn þreyttir en þakklátir eftir nóttinaInnheimta vegtolla gæti hafist árið 2023Frá ritstjóra: Er lítið um hæft starfsfólk í Reykjanesbæ?Suðurnesjaþingmenn á meðal þeirra sem fá hæstu kostnaðargreiðslurnarBrotist inn hjá FjölsmiðjunniAllt fullt á Keflavíkurflugvelli – Farþegum ráðlagt að taka rútu eða leigubíl á völlinnÁhugaverð störf í boði [...]