Nýjast á Local Suðurnes

Bæjarráð þakkar heilbrigðisstarfsfólki

Bæjarráð Reykjanesbæjar sendi þakkarkveðjur á heilbrigðisstarfsfólk á fundi sínum í dag, en í bókun þess efnis segja fulltrúar ráðsins meðal annars að á stundum sem þessum komi glögglega í ljós hversu mikilvægt það er fyrir samfélag eins og okkar að hafa á að skipa vel menntuðu og dugmiklu heilbrigðisstarfsfólki sem er tilbúið til að setja þarfir annarra ofar sínum eigin.

Bókunin í heild sinni:

„Reykjanesbær færir starfsfólki og stjórnendum HSS bestu þakkir fyrir trausta og dygga þjónustu við þær erfiðu aðstæður sem nú ríkja á Suðurnesjum og landinu öllu. Á stundum sem þessum kemur glögglega í ljós hversu mikilvægt það er fyrir samfélag eins og okkar að hafa á að skipa vel menntuðu og dugmiklu heilbrigðisstarfsfólki sem er tilbúið til að setja þarfir annarra ofar sínum eigin.
Bestu þakkir til ykkar sem og allra sem leggja mikið á sig til þess að hlúa að þeim sem veikir eru og vernda þá sem eru í viðkvæmri stöðu.“