Nýjast á Local Suðurnes

Bæjarráð Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar taka undir áherslur um lægra verð á eldsneyti

Bæjarráð Reykjanesbær lagði fram bókun á fundi sínum í morgun hvar fram kemur að ráðið taki undir þær áherslur sem settar hafa verið fram í undirskriftasöfnun sem hópur áhugafólks um lægra eldsneytisverð á Suðurnesjum stendur fyrir. Undir bókunina skrifuðu allir bæjarfulltrúar nema tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks sem sátu hjá.

Bæjarráð Suðurnesjabæjar lagði einnig fram bókun sama efnis á fundi sínum á dögunum.

Bókun bæjarráðs Reykjanesbæjar:

„Bæjarráð Reykjanesbæjar tekur undir þær áherslur sem settar hafa verið fram í undirskriftasöfnun sem hópur áhugafólks um lægra eldsneytisverð á Suðurnesjum stendur fyrir.
Bæjarráð telur að bæði sé það eðlilegt og réttlátt að íbúar á Suðurnesjum sitji við sama borð og íbúar höfuðborgarsvæðisins þegar kemur að kaupum á eldsneyti.
Atvinnuástand á Suðurnesjum er nú með allra versta móti í kjölfar áhrifa Covid faraldursins, sem nú hefur varað í rúmlega eitt ár.
Bæjarráð Reykjanesbæjar skorar því olíufélögin á svæðinu að þau sýni samfélagslega ábyrgð og lækki eldsneytisverð á Suðurnesjum til samræmis við það sem best gerist á höfuðborgarsvæðinu.“

Friðjón Einarsson (S), Guðbrandur Einarsson (Y), Jóhann Friðrik Friðriksson (B) og Margrét Þórarinsdóttir (M) samþykkja bókunina.

Baldur Þ. Guðmundsson (D) og Margrét A. Sanders (D) sitja hjá.