Bæjarins beztu bæta við stað á KEF - Local Sudurnes
Bæjarins beztu pylsur hafa opnað sinn annan sölustað á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða pylsuvagn sem er í svokölluðu „pop-up“ rekstrarrými á biðsvæði í suðurbyggingu flugvallarins. Fyrir rekur fyrirtækið annan stað í komurými flugstöðvarinnar. Aðeins þeir farþegar sem eru á leið til Bretlands, Bandaríkjanna og annarra landa utan Schengen-svæðisins geta nýtt sér staðinn, sem verður aðeins opinn í eitt ár. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Isavia. „Isavia auglýsti í vetur eftir aðilum til að reka veitingasölu í pop-up rýmum á biðsvæði í suðurbyggingu Keflavíkurflugvallar. Biðsvæðið er fyrir farþega sem hafa farið í gegnum landamæri og eru á leið til landa utan Schengen-svæðisins,“ segir í tilkynningunni. Meira frá SuðurnesjumJómfrúin opnar á KEFMiklum verðmætum stolið úr ferðatöskuKormákur & Skjöldur og Epal í pop-upGera ráð fyrir miklum halla á rekstri bæjarsjóðs á næsta áriSkemmtistaður gjörónýtur eftir eldsvoðaKomufarþegar geta nýtt sér leið 55Sbarro opnar á KEFRagnheiður Sara tryggði sér sæti á Heimsleikunum í crossfit – Sigraði sinn riðil örugglegaAuglýsa eftir aðilum til að reka “Pop-up” veitingastað í LeifsstöðNeyðarstjórn Reykjanesbæjar kom saman í fyrsta sinn