sudurnes.net
Aukin skjálftavirkni í Geldingadölum - Local Sudurnes
Skjálftavirkni hefur aukist töluvert í Geldingadölum frá því í gærkvöldi, en 1-10 skjálftar ríða yfir á mínútu hverri, samkvæmt mælingum veðurstofu. Sá stærsti sem hefur mælst hingað til var um 4,9 að stærð samkvæmt skjálftakorti á heimasíðu Veðurstofunnar. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að hún hafi breytt fluglitakóða í appelsínugulan vegna skjálftahrinunnar. RÚV hefur eftir Böðvari Sveinssyni, náttúruvársérfræðingi hjá Veðurstofunni, að virknin hafi aukist mikið í nótt og minnti á að kvikusöfnun sé enn í gangi við gosstöðvarnar. Meira frá SuðurnesjumUndir 50 í sóttkví á SuðurnesjumByggja útsýnispalla við Brimketil50 marka maður til NjarðvíkurHluti grunnskólabarna fær strætókort án endurgjaldsNota nýtt tæki við hraðamælingar við grunnskólaKæstar kræsingar og mikið stuð á þorrablóti Lionsklúbbs NjarðvíkurEin stærsta lúxussnekkja heims liggur við festar í ReykjanesbæÁrekstrar og dóp í umferðinniMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnVon á hálku í morgunsárið