sudurnes.net
Aukin ánægja á meðal farþega þrátt fyrir mikla aukningu og framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli - Local Sudurnes
Hlynur Sigurðsson framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar fór yfir þær aðgerðir sem Isavia hefur staðið í til þess að taka við auknum fjölda farþega um Keflavíkurflugvöll í sumar, á morgunfundi sem fyrirtækið stóð fyrir á dögunum. Í máli Hlyns kom fram að meðal annars verður 7.000 fermetra stækkun tekin í notkun í ár með tvöfalt stærri landamærasal og stórbættu biðsvæði með verslunar- og veitingaþjónustu í suðurbyggingu. Hlynur sýndi einnig niðurstöðu samræmdra þjónustukannana sem framkvæmdar eru af Alþjóðasamtökum flugvalla (ACI) og eru framkvæmdar á fjölda flugvalla um allan heim. ACI könnunin sýnir að þrátt fyrir 40% fjölgun farþega árið 2016 tókst starfsfólki á Keflavíkurflugvelli að bæta þjónustuna sem er eftirtektarverður árangur. Að lokum kynnti Hlynur þá nýjung að opnað verður fyrir innritun á miðnætti fyrir morgunflug. Með þessu móti er talið að hægt sé að minnka álagið í innritun að morgni. Næturopnunartíminn verður til reynslu í júní. Meira frá SuðurnesjumGeir­mund­ur fær 18 mánaða dómTvöfalt fleiri strikuðu yfir nafn ÁsmundarKeflavíkurflugvöllur hlýtur alþjóðlega viðurkenninguFá sérstaka viðurkenningu fyrir hreinlæti á Covid-tímumStefnt að kolefnis- og ISOvottun KeflavíkurflugvallarAukinn hagnaður af rekstri KölkuFá viðurkenningu fyrir þjónustu og hreinlæti í heimsfaraldriGRAL fékk styrk frá mennta- og menningarmálaráðuneytinuLandshlutasamtök sveitarfélaga skora á ráðherra og alþingismenn(Ó)heppnasti markvörður heims er kominn í blakið – [...]