sudurnes.net
Auglýsing Markaðsstofu Reykjaness fær extra mikla athygli - Local Sudurnes
Umsvifin eru alltaf að aukast hjá Markaðsstofu Reykjaness, enda koma heilu flugvélarnar til landsins fullar af ferðamönnum sem aldrei fyrr, og því vantar auka starfsfólk í flott teymi stofunnar – það að ferðaþjónustuaðilar auglýsi eftir starfsfólki á þessum tímum er því ekkert sérstaklega í frásögur færandi, nema eitthvað smotterí klikki. Ein lítil innsláttarvilla kom auglýsingu Markaðsstofunnar á flug á veraldarvefnum eftir að vefsíðan Menn.is birti skjáskotið sem finna má hér fyrir neðan, en þar má sjá hversu eitt stykki “L”, eða skortur á því getur breytt miklu. Svona getur þó gerst á bestu bæjum, eins og sjá má á myndinni þar fyrir neðan sem er skjáskot af Suðurnes.net frá því á síðasta ári. Meira frá SuðurnesjumVinsælast 2015: Myndir af Striki – Hér eru fleiri myndir!Nýjasta æðið mætt á SuðurnesinSólin er ekki alltaf af hinu góða – Myndir!Hlutfall atvinnulausra eykst hratt í Reykjanesbæ – Stofna átakshópSérsveitin tíður gestur á heimilum hælisleitendaBlóðslettur og hnífar á víð og dreif um Bókasafn ReykjanesbæjarBirti gamlar bekkjarmyndir á Facebook – Viðbrögðin létu ekki á sér standaLjósanæturhlaup Lífsstíls í kvöldMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnSkora á bæjaryfirvöld að útvega húsnæði undir bardagaíþróttir