Nýjast á Local Suðurnes

Auglýsa eftir flaggara

Grindavíkurbær leitar að einstaklingi eða félagasamtökum til að sjá um að flagga á fánastöngum Grindavíkurbæjar sem eru á eftirfarandi stöðum:

a) Hóll við Gerðavelli
b) Festi
c) Víðihlíð / Miðgarð
d) Niður Víkurbraut og Ránargötu

Á fánastöngum a, b og c skulu fánar drengir að húni á lögboðnum fánadögum sem eru:

  • Nýársdag
  • Föstudaginn langa (eingöngu dregið í hálfa stöng)
  • Páskadag
  • Sumardaginn fyrsta
  • 1. maí (Verkalýðsdagurinn)
  • Hvítasunnudag
  • Sjómannadaginn
  • 17. júní (þjóðhátíðardaginn)
  • 16. nóvember (dag íslenskrar tungu)
  • 1. desember (fullveldisdaginn)
  • Jóladag
  • Fæðingardagur forseta Íslands (núna 26. júní)

Flagga skal á fánastöngum Grindavíkurbæjar þegar andlát verður í Grindavík og eins þegar um útfarir er að ræða.

Á fánastöngum d eru fánar eingöngu dregnir að húni 17. júní og í tengslum við Sjóarann síkáta.

Áhugasömum er bent á að gefa sig fram við sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs fyrir 1. apríl nk. gegnum netfangið eggert@grindavik.is.