sudurnes.net
Auðvelda strætófarþegum að finna týnda muni - Local Sudurnes
Hóperðir Sævars, sem sjá um að þjónusta strætónotendur í Reykjanesbæ, hafa tekið í gagnið Facebook-síðu sem auðveldar þeim sem teljað sig hafa tapað lausamunum í bifreiðum fyrirtækisins að finna þá muni. Tugir lausamuna eru í geymslu á vegum fyrirtækisins, en aðallega er um að ræða fatnað og töskur af ýmsu tagi. Birtar eru myndir af lausamunum sem tapast hafi í strætó í Reykjanesbæ og er hægt að hafa samband í síma 421-4444 sakni fólk einhvers sem það telur sig hafa gleymt í strætó. Sérstaklega er tekið fram á síðunni að um sé að ræða muni sem fundist hafi í innanbæjarstætó, telji fólk sig hafa tapað einhverju á leiðum 55 og 89 er fólki bent á að hafa samband við rekstraraðila þeirra leiða, ABK ehf. (áður SBK ehf.) í síma 420-6000. Meira frá SuðurnesjumAtli Már sýknaður í meiðyrðamáli – “Ég vann orrustuna en tapaði stríðinu”Deiliskipulagsbreytingar við Framnesveg samþykktar í bæjarstjórnLíkur á öðru eldgosi aukastUngir hljómborðsleikarar safna til styrktar langveikum börnum í ReykjanesbæÁrni Sigfússon hættir í pólitík – Margrét Sanders líkleg til að leiða listannVinna að lausn á strætómálumBjóða Reykjavíkurstrætó út til eins ársLoka á afgreiðslu skólamáltíða vegna ógreiddra reikningaSlæm tölfræði hliðholl Njarðvíkingum fyrir fjórða leikinn gegn KRBæjarstjóri biðst afsökunar á herbergisleigu