Auðlindagarður HS Orku hlaut umhverfisverðlaun
HS Orka hlaut umhverfisverðlaunin Energy Globe Award á Alþjóðlega umhverfisdeginum í gær.
Verðlaunin eru veitt þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa skarað fram úr í umhverfismálum. Í ár voru 178 verkefni valin víðs vegar að úr heiminum og var Auðlindagarðurinn valinn besta íslenska verkefnið, að því er kemur fram í tilkynningu.
„Við erum hrærð yfir þessum verðlaunum og þeirri viðurkenningu sem Auðlindagarðurinn er að fá á alþjóðavísu. Hugmyndafræðin að baki Auðlindagarðinum er einföld, það er að segja að það er ekkert sem heitir sóun. Allir straumar sem falla til við orkuvinnslu hjá okkur eru nýttir af fyrirtækjum í Auðlindagarðinum, sem eru sjö í dag og fer fjölgandi,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, í tilkynningunni.
„Albert Albertsson er hugmyndasmiðurinn að baki Auðlindagarðinum og okkar lærifaðir. Albert hefur alltaf bent okkur á að fjölþætt nýting auðlinda sé einfaldlega heilbrigð skynsemi.“
Í haust kemur í ljós hvaða fyrirtæki hlýtur Energy Globe-verðlaunin á heimsvísu.