Nýjast á Local Suðurnes

Atvinnuleysi komið yfir 20 prósentin

Atvinnuleysi í Reykjanesbæ jókst um 1,1% á milli ágúst og september samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Samanlagður fjöldi atvinnulausra auk þeirra sem eru á hlutabótaleið í sveitarfélaginu var 2.682 eða 20,8% í lok september.

Sérstaka athygli vekur hlutfallslega hærra atvinnuleysi á meðal kvenna 23,3% á móti 19% á meðal karla. Jafnframt er fjöldi þeirra sem nú hafa verið atvinnulausir í 6 mánuði eða lengur áhyggjuefni. Af þeim 2.682 sem voru í þjónustu Vinnumálastofnunar við mánaðarlok, hafa 1.219 þeirra verið í þeirri stöðu í 6 mánuði eða lengur. Þar af hafa 419 verið meira en eitt ár á atvinnuleysisskrá.

Menningar- og atvinnuráð Reykjanesbæjar ræddi þessi mál á fundi sínum í gær og mælist eindregið til þess að bótatímabil atvinnuleysisbóta verði lengt sem nemur einu ári. Framkvæmdastjóra falið að koma þessum tilmælum til þingmanna kjördæmisins.