sudurnes.net
Átta þúsund fermetra Stapaskóli verður tilbúinn um mitt ár 2020 - Local Sudurnes
Ríkiskaup hafa, fyrir hönd Reykjanesbæjar, óskað eftir tilboðum í verkframkvæmdir vegna nýs grunnskóla við Dalsbraut 11-13 í Reykjanesbæ. Heildarstærð fyrsta áfanga grunnskólans er brúttó um 7.700 m². Skólinn er á tveimur hæðum auk tæknikjallara og tæknirýmis sem telst til þriðjuhæðar. Tilboð í framkvæmdina verða opnuð í lok nóvembermánaðar og verkinu skal skilað þann 15. júní árið 2020. Innkaupaferli Ríkiskaupa og Reykjanesbæjar, vegna verkhönnunar og verkframkvæmdar við byggingu Stapaskóla í Dalshverfi í Reykjanesbæ var stöðvað í sumar eftir ákvörðun kærunefndar útboðsmála þar sem lægstbjóðandi í verkefnið, verktakafyrirtækið Munck, krafðist þess að kærunefnd útboðsmála stöðvaði „ferli samkeppnisviðræðna“ með kæru til nefndarinnar. Reykjansbær samdi um greiðslu skaðabóta til fyrirtækisins skömmu síðar. Meira frá SuðurnesjumRíkið kynnir aðgerðir á Suðurnesjum – Fjórir milljarðar í verkefni á KEFStór árgangur kallar á stækkun leikskólaVilja bæta fjórum hæðum ofan á Hafnargötu 29Óska eftir tilboðum í tengibyggingu við Fjölbrautaskóla SuðurnesjaVilja bæta 44 herbergjum á sex hæðum við Hótel KeiliBjóða út byggingu sex íbúða fyrir aldraðaStytta opnunartíma leikskóla vegna takmarkaðrar nýtingarVilja halda bótum og vinna svartFella niður fæðisgjald fyrir þriðja barn í grunnskólumGerð undirganga við Hafnaveg í útboð – Verkinu skal lokið um miðjan nóvember