Átján kennarar hafa sagt upp störfum í Reykjanesbæ
Alls hafa átján kennarar sagt upp störfum í Reykjanesbæ vegna kjaradeilu kennara og Sambands sveitarfélaga. Um er að ræða kennara úr fjórum af sex grunnskólum sveitarfélagsins.
Þetta kemur fram á mbl.is, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru uppsagnir í stærstu sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu einungis í Reykjanesbæog Reykjavík, þar sem fjöldi uppsagna berst skólastjórnendum daglega.
Mikil ólga er í stéttinni vegna kjaramála og fylltu kennarar í Reykjanesbæ meðal annars ráðhús bæjarins fyrir um viku síðan á samstöðufundi, þar sem þess var meðal annars krafist að sveitarfélögin bregðist án tafar við því alvarlega ástandi sem skapast hefur í skólakerfinu.
“Laun kennara eru of lág og valda því með öðru að grunnskólakerfið er ekki lengur sjálfbært. Þeir kennarar sem nú starfa í grunnskólum njóta mun verri kjara en samanburðarhópar og raunar töluvert lægri kjara en almennt tíðkast á landinu. Nú eru samningar okkar lausir og hafa verið lengi. Mánuðum saman hafa sveitarfélögin haft tíma og tækifæri til að bregðast við bráðum vanda. Ekkert bólar á viðbrögðum og samninganefnd sveitarfélaga virðist enn ekki hafa umboð til neins nema að endurtaka leikinn frá því í sumar og bjóða áfram óboðleg kjör,” sagði meðal annars í kröfu kennara sem afhent var Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra.