Nýjast á Local Suðurnes

Ásakanir Kaffitárs á hendur Isavia eru mjög alvarlegar

Rekstraraðili Keflavíkurflugvallar, Isavia hefur sent frá sér tilkynningu í kjölfar fréttar sem birt var í Morgunblaðinu í gær um mál sem tengist útboði á veitingaaðstöðu á Keflavíkurflugvelli. Í tilkynningunni segir Isavia ásakanir Kaffitárs á hendur fyrirtækinu vera alvarlegar og að margar rangfærslur séu í bréfi sem Kaffitár sendi á eftirlits- og stjórnskipunarnefnd Alþingis.

Tilkynning Isavia í heild sinni:

Í grein Morgunblaðsins í dag er vitnað í bréf sem Kaffitár sendi eftirlits- og stjórnskipunarnefnd Alþingis. Málið varðar forval vegna veitinga- og verslunarrýmis í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Isavia hefur ekki fengið afrit af bréfinu sem fjallað er um en í greininni eru margar rangfærslur frá fulltrúum Kaffitárs og hafa þær flestar verið leiðréttar áður. Ekki verður farið yfir alla þá þætti í þessu svari en til dæmis er það rangt að samið hafi verið við aðila á grundvelli tilboðs sem barst eftir að frestur rann út, talað er um að Lagardere hafi einokunarstöðu en benda má meðal annars á að í sumar var opnað nýtt rými fyrir veitingasölu sem úthlutað er til skemmri tíma og fyrstu sex mánuði var fyrirtæki sem selur sambærilegar vörur og Lagardere og því í beinni samkeppni við fyrirtækið. Látið er að því liggja að gögnum hafi verið haldið eftir en það er ekki rétt því Isavia hefur veitt Kaffitári aðgang að öllum gögnum málsins og meiri gögnum en upplýsingalög kveða á um. Hins vegar var strikað yfir viðkvæmar viðskiptaupplýsingar í takt við bréf Samkeppniseftirlitsins um að gögnin innihéldu viðkvæmar upplýsingar sem óheimilt væri að dreifa á milli samkeppnisaðila.

Verslunar- og veitingasvæðið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er eftirsótt svæði og komast færri að en vilja. Vegna þess að eftirspurnin er meiri en framboðið heldur Isavia valferli um þau svæði sem í boði eru. Valferlið er að erlendri fyrirmynd og fer fram á sama hátt og á fjölda evrópskra flugvalla. Erlent ráðgjafafyrirtæki sem hefur áratugareynslu í að velja rekstraraðila á verslunar- og veitingasvæði flugvalla var fengið til ráðgjafar við ferlið auk þess sem fulltrúi þess átti sæti í dómnefnd.

Mikið uppbyggingarskeið stendur yfir á Keflavíkurflugvelli og er verslunar- og veitingasvæðið mikilvæg tekjulind til þess að byggja flugvöllinn hratt upp. Tilboðin sem bárust voru metin út frá ýmsum forsendum og meðal þeirra voru fjárhagslegar forsendur. Í flokknum sem Kaffitár sóttu um í bárust fimm tilboð og niðurstaða dómnefndar var sú að Kaffitár lenti í fimmta og síðasta sæti.

Ásakanir Kaffitárs á hendur Isavia eru mjög alvarlegar. Hið undarlega er að lögmaður Kaffitárs sendi erindi á stjórnskipunar- og eftirlits Alþingis í stað þess að leita til dómstóla eða Samkeppniseftirlits sem er rétta leiðin ef fyrirtækið vill leita réttar síns.

Hvað varðar birtingu upplýsinga og útstrikanir hefur það verið álit lögfræðinga Isavia að um viðkvæmar samkeppnisupplýsingar sé að ræða sem óheimilt sé að deila á milli fyrirtækja í samkeppni. Samkeppniseftirlitið hefur komist að sömu niðurstöðu og sendi bréf til Isavia og Kaffitárs þar sem bent var á að gögnin væru viðkvæm.