sudurnes.net
Árni Gísli ráðinn sviðsstjóri stjórnsýslusviðs - Local Sudurnes
Gengið hefur verið frá ráðningu í starf sviðsstjóra stjórnsýslusviðs hjá sveitarfélaginu. Árni Gísli Árnason hefur verið ráðinn í starfið og mun hefja störf 1.september nk. Árni er með B.Sc. gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst auk þess að hafa lokið M.Sc. gráðu í viðskipta- og hagfræði frá Árósarháskóla í Danmörku. Frá árinu 2021 hefur Árni sinnt starfi forstöðumanns vöktunar og upplýsingaþjónustu hjá Vegagerðinni sem er ný eining er hefur það hlutverk að sinna vöktun og upplýsingmiðlun vegna samgangna á vegakerfinu allan sólarhringinn allt árið. Einnig hefur einingin leitt þróun á stafrænni upplýsingagjöf umferðaupplýsinga á upplýsingavef Vegagerðarinnar. Árin 2014 – 2021 starfaði Árni sem deildarstjóri og forstöðumaður flugverndar, rekstrar- og þjónustusviðs Isavia á Keflavíkurflugvelli. Í störfum sínum hefur Árni öðlast yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á stjórnun, fjármálum, rekstri, áætlanagerð, stefnumótun og innkaupum auk góðrar þekkingar og reynslu af opinberri stjórnsýslu og þróun rafrænnar þjónustu Meira frá SuðurnesjumKristinn nýr mannauðsstjóri ReykjanesbæjarReynslubolti stýrir innkaupum fyrir ReykjanesbæÞorsteinn nýr framkvæmdastjóri Ný-fisksHilma og Sigurgestur til ReykjanesbæjarKeflavíkurflugvöllur lokast sjaldan vegna veðursDaníel og Jón Ragnar taka við GerðaskólaJón Haukur ráðinn aðstoðarskólastjóri StapaskólaGuðrún mun sjá um fjármálin og stjórnsýslunaNýr forstjóri HS Orku ráðinn á næstunni – Þetta eru hæfniskröfurnar!Leita eftir áhugasömum aðilum til að ganga og mynda gönguleiðir á [...]