sudurnes.net
Árekstur og bílvelta í Njarðvík - Einn fluttur á HSS - Local Sudurnes
Bifreið valt á hringtorginu við Bolafót og Njarðarbraut í Reykjanesbæ í gærkvöld. Krapi var á veginum og slæmt skyggni þegar óhappið átti sér stað. Rann bifreiðin til og endaði uppi á steini á hringtorginu þar sem hún valt. Hún var óökufær eftir veltuna og var því fjarlægð með dráttarbifreið. Ökumaður og tveir farþegar sem með honum voru í bifreiðinni sluppu ómeiddir. Áður hafði orðið árekstur á mótum Njarðarbrautar og Stekks þegar bifreið var ekið í veg fyrir aðra. Annar ökumaðurinn kenndi eymsla eftir óhappið og var ekið með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þá var önnur bifreiðin í óökufæru ástandi eftir áreksturinn. Meira frá SuðurnesjumBílvelta á Reykjanesbraut – Ökumaður og farþegar fluttir á HSS til skoðunarEkið á vegrið á Reykjanesbraut og bílvelta á GarðvegiFluttur á HSS eftir veltu á GarðvegiÁttaði sig ekki á fjalægð frá bílalúgu og ók utan í söluturnBílvelta á ReykjanesbrautFlutningabíll valt á ReykjanesbrautTveir fluttir á HSS eftir bílveltuBoraði í gegnum höndina á sérFerðamenn slösuðust í flugstöðinniÖkumaður bifhjóls féll í götuna